Fjáröflun 10. bekkjar

23.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Ýmis fjáröflun hefur verið í gangi hjá 10. bekk það sem af er hausti. Foreldrar skipulögðu kleinubakstur fyrir tveimur vikum og var bakað úr 100 kg af hveiti og allt seldist, smökkuðust kleinurnar mjög vel og verður þetta endurtekið eftir áramót.


Nú er verið að leggja lokahönd á peysukaup sem nemendum 7.-10. bekkjar var boðið að kaupa, verða þetta hettupeysur  með nafni skólans.


 Nemendur tóku að sér að selja dagatöl fyrir Krabbameinsfélagið Sigurvon og  lýkur þeirri sölu nú um helgina og næst á dagskrá er sala á lakkrís og er skipulagning þess komin af stað.