Fjallgöngu lokið

27.08.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Fjallganga 8. bekkjar yfir Fellsháls er nú að baki og gekk býsna vel. Hópurinn hittist við aðalstöðvar Vegagerðarinnar á Dagverðardal og lagði af stað klukkan að ganga 9 í morgun. Gengið var eftir gamla veginum upp á heiði að vegamótunum, það munu vera u.þ.b. 6 km. Þar var áð og nestið borðað með bestu lyst en síðan var haldið áfram að Nónvatni. Þar var fallegt um að litast og tekin góð pása við vatnið. Þá var bara lokaspretturinn eftir niður í Engidalinn. Göngunni lauk formlega við rafstöð OV í Engidal og þangað sóttu foreldrar börn sín. 


Allt gekk þetta slysalaust, flestir voru svolítið þreyttir á leiðarenda en líka ánægðir með sig og afrek dagsins. Nokkrir hundar af ýmsum stærðum og gerðum voru með í ferðinni og var gaman að sjá hvað þeir skemmtu sér vel og nutu göngunnar og félagsskaparins.


Þetta munu vera nálægt 15 km í allt, og töluvert bratt á köflum og tók gangan alls 5- 5 1/2  klst. Veðrið var ágætt lengstan hluta leiðarinnar, logn og blíða  en þó blés svolítið og rigndi smávegis á köflum, sérstaklega efst á heiðinni.


Mæting í ferðina var óvenju góð og greinilegt 8. bekkingar eru miklir dugnaðarforkar og engar veimiltítur.


Með í göngunni voru líka Atli íþróttakennari, Sigríður Guðjónsd. Rannveig Halldórsd., Herdís Hübner og Gylfi pabbi Margrétar.