Fjallgangan

29.08.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag fórum við fjallgöngu á Hnífa. Við hjóluðum inn í Tungu-hverfi og fengum okkur nesti við gamlar tóftir. Síðan löbbuðum við upp á neðsta hjallann á Hnífum og rifjuðum upp helstu örnefni í augsýn. Við vorum svo heppin að fá 3 flotta stráka úr 10. bekk sem komu með okkur og líka ein mamma og þökkum við þeim fyrir samveruna. Það voru þreyttir og berjabláir krakkar sem komu í skólann að loknum góðum degi.