Fjallganga í Stórurð
05.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í gær fórum við í hina árlegu fjallgöngu 1. bekkjar upp í Stórurð. Við gengum sem leið lá upp Urðavegsbrekkuna og þaðan upp í urðina. Það var ljúft að setjast niður ofarlega í urðinni og gæða sér á nesti og njóta útsýnisins yfir fallega bæinn okkar. Að lokinni nestispásu fórum við að kíkja í kringum okkur, margir tíndu ber á meðan aðrir léku sér í klettunum, fundu álfasteina og kastala. Það voru þreytt og berjablá börn og kennarar sem snéru heim í skólann . Það var nokkuð erfitt að slíta þau frá þessu falleg umhverfi og margir höfðu á orði að hingað í Stórurðina færu þeir aftur, helst strax í dag.








