Fjallganga í Naustahvilft

28.08.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á morgun ætlum við í 4. bekk að fara í fjallgöngu og ganga upp í Naustahvilft. 


Þeir sem eiga heima inn í Firði mega mæta hjá Orkubúshólnum ( bak við raðhúsin í Hafraholtinu) kl. 9 á hjólum.  Árný mun bíða þar eftir þeim.  Allir aðrir mæta í skólann kl. 8 á með hjólið sitt með sér  og við leggjum af stað inn í fjörð í seinasta lagi 8:30. 


Allir þurfa að vera í góðum skóm, klædd eftir veðri,  með hjólahjálm, berjabox og með gott nesti fyrir morgunhressinguna í léttum bakpoka, gott er að hafa vatn eða annan drykk í margnota flösku eða jafnvel heitt kakó á brúsa.  Þeir sem eru í mötuneytinu fá pylsur ( 2 á mann) þaðan í hádeginu og þeir sem eru ekki í mötuneyti koma með pylsur eða annað sem þeir vilja borða í hádegismat. Skólataskan á að vera heima.


Lögreglan ætlar að fylgja okkur eftir þann spotta sem við þurfum að hjóla á þjóðveginum en við notum auðvitað hjóla- og göngustíga þegar það er hægt. 


Eftir fjallgönguna hjólum við inn í Fjörð og förum á leikvöllinn og þar í nágreninu ætlum við að grilla pylsurnar.


Við leggjum af stað heim um  12:20 og þeir sem eiga heima inni í Firði mega fara beint heim ef foreldrar vilja, gott er að láta mig vita ef þau eiga að koma með okkur út á Eyrina. 


Kveðja Helga