Fjallganga föstudaginn 29.ágúst 2014
28.08.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Góðan dag.
Á morgun, föstudaginn 29.ágúst er árleg haustganga árgangsins (ákveðin með skömmum fyrirvara vegna veðurs eða öllu heldur áætluðum skorti á góðu veðri í næstu viku :-(
Mæting er við gönguskíðaskálann kl. 8:15 og þurfum við að biðja foreldra að koma börnunum þangað og hvet ég krakkana til að sameinast í bíla, ef einhver fær ekki far þá getum við Árný reddað því, bara hafa samband (s.6919131).
Við ætlum að skoða skíðasvæðið í sumarbúningi, fara upp á Sandfell, inn fyrir lyftur og niður Tungudal. Áætlað er að koma heim um 12.
Þeir sem eru í mataráskrift fá hádegisnesti frá mötuneytinu, en aðrir þurfa að hafa með sér tvöfalt nesti.
Að sjálfsögðu þurfa allir að vera vel klæddir og góðir skór skipta miklu máli. Foreldrar, afar eða ömmur eru hvattir til að koma með okkur ef þeir sjá sér það fært.
Kær kveðja, Erna Sigrún.








