Fjallganga á Kistufell

28.08.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í gær fór 9. bekkur í hina árlegu fjallgöngu og var að þessu sinnu gengið á Kistufell. Hópurinn hittist við gönguskálann og tók gangan upp á Kistufell tvo og hálfan tíma.


Þegar þangað var komið nutum við útsýnis til allra átta s.s Bolungarvíkur, Hnífsdal, Skutulsfjarðar og var þetta alveg magnað.


Nemendur stóðu sig frábærlega. Á niðurleið var komið við á snjóskafli í Miðfellinu og renndu nemendur sér nokkrar ferðir glaðir og ánægðir.