Fjallganga 8. bekkjar

25.08.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

8. bekkur byrjar skólastarfið á hefðbundinn hátt með því aðg fara í fjallgöngu. Gangan okkar verður miðvikudaginn 27. ágúst og verður farið yfir Fellshálsinn. Við ætlum að hittast hjá aðalstöðvum Vegagerðarinnar í Dagverðardal kl. 8:00 og ganga þaðan eftir veginum upp á heiði, fara síðan yfir hálsinn og koma niður Engidalinn. Við gerum ráð fyrir að gangan taki 4-5 klst. 


Við getum ekki nýtt okkur strætisvagna á þessum tímum svo að við verðum að biðja foreldra að koma börnunum sínum upp á Vegagerð kl. 8 og sækja þau að göngu lokinni - nema þau sem treysta sér til að ganga heim. Eflaust eiga foreldrar misjafnlega auðvelt með að gera þetta en það er um að gera að hjálpast að og fjölmenna í bílana.


Mikilvægt er að vera vel klæddur á göngunni í samræmi við veður og sérstaklega að vera í góðum skóm. Svo er um að gera að hafa nóg af góðu nesti, alveg ótrúlegt hvað maður getur orðið svangur í öllu þessu hreina lofti! Tilvalið að taka berjaílát og jafnvel tínur með, við förum um ágætis berjaland á leiðinni. Svo er það blessaður síminn, hann er bæði mikilvægt öryggistæki og svo er sniðugt að taka myndir af sjálfum sér og félögunum í þessu fallega umhverfi.