Fjallganga
28.08.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Við höfum ákveðið að drífa okkur í fjallgönguna á morgun, miðvikudag. Við ætlum að ganga frá Seljalandsdal gegnum Þjófaskörðin og niður Hnífsdalinn. Við hittumst þá við gönguskíðaskálann á Seljalandsdal klukkan 8. Allir þurfa að vera vel klæddir eftir veðri, í góðum skóm og með gott nesti.
Við verðum að biðja foreldra að hjálpa krökkunum sínum að komast upp á Seljalandsdal og svo heim úr Hnífsdalnum um hádegið. Um að gera að sameinast í bíla og hjálpast að.
Ef einhverjir foreldrar hafa tök á að koma með í gönguna eru þeir hjartanlega velkomnir.
Sjáumst öll, hress og kát í fyrramálið
kveðja
Herdís og Monica