Fiskurinn hennar Stínu

19.04.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í vikunni höfum við unnið með lagið Fiskurinn hennar Stínu í Byrjendalæsi. Við höfum unnið margvísleg verkefni m.a. að finna rím í textanum, finna orð sem byrja á sjó- ,skrifa sögu upp úr laginu og kynnast nokkrum orðatiltækjum sem tengjast sjó. Eins og : -að hafa aldrei migið í saltan sjó,  hvernig er hægt að skilja það nema á einn veg...


 


Að lokum fengu krakkarnir eina kennslustund til að búa til "spuna" leikrit út frá laginu. Síðan sýndu þau leikritin,  ásamt fleiri atriðum í sameiginlegri samveru í dag. Virkilega skemmtileg vinna Cool