Ferð í Jónsgarð og fleirir fréttir úr 1. bekk
20.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Krakkarnir í 1. bekk hafa margt brallað í þessari viku. Á mánudaginn hlustuðu þeir á söguna um Láka jarðálf og unnu með stafina Á og L í framhaldi af því. Þessi Láki var nú meiri álfurinn, vildi bara gera öðrum illt og hegðun hans var eldrauð en þegar leið á söguna bætti hann hegðun sína svo hún varð græn og sagan endaði vel. Láki fylgdi okkur síðan í gegnum stafavinna í byrjendalæsinu alla vikuna. Á þriðjudaginn æfðu krakkarnir sig m.a. á að skrifa stafina Á og L , sumir fór í heimilisfræði og fengu að poppa á meðan hinir voru hjá Helgu og Kristínu í handavinnu og voru að gera myndaramma. Nokkrir rammar eru þegar farnir upp á vegg. Í stærðfræðinni vorum við að vinna með mynstur og form alla vikuna. Á miðvikudaginn fór krakkarnir í 1. bekk í Jónsgarð til að týna laufblöð og pöddur. Þegar heim var komið röðuðum við laufblöðum inn í dagblöð til þerris. Á fimmtudaginn skoðuðum við síðan pöddurnar í víðsjá. Í dag teiknuðum við m.a. mynd af álfi og máluðum hana svo með vaxlitum og vatnslitum. Já það er sannarlega margt brallað í 1. bekk og nóg að gera.








