Ferð á slóðir Gísla Súrssonar
06.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

10. bekkur fór í Haukadal í Dýrafirði, á slóðir Gísla Súrssonar í dag. Lagt var af stað kl. 8:00 með rútu og ferðin tók u.þ.b. klukkutíma. Á leiðinni fór að rigna en það stytti upp um leið og við stigum út úr rútunni og veðrið var hið blíðasta, logn og bjart. Við höfðum bækistöð í sumarbústað afa og ömmu Suwats og gengum þaðan um Haukadalinn, kíktum á hugsanleg bæjarstæði Hóls og Sæbóls og virtum fyrir okkur seftjörnina sem kemur mikið við sögu. Hún var vettvangur ófriðlegra atburða og er óhætt að segja að fremur var ófriðlegt yfir henni í dag, því að krían er mætt og hún er sjaldan mjög friðsöm. Hún er reyndar ekki byrjuð að verpa svo hún lét vera að ráðast neitt á okkur í þetta sinn. Við reyndum að ímynda okkur hvar haugar þeirra Vésteins og Þorgríms gætu mögulega verið og kannski snýr einhver úr hópnum aftur síðar til að grafa þarna, því það er ómögulegt að vita ekki betur hvar (eða hvort?) þessir haugar eru.
Við röltum svo til baka í bústaðinn og fengum okkur heitt Swiss Miss og borðuðum nesti. Síðan fóru nemendur út í fótbolta og nutu góða veðursins en kennararnir fóru að snurfusa bústaðinn sem var reyndar hreinasta pjatt, því umgengnin var til fyrirmyndar.
Þetta var skemmtileg ferð og við komum til baka upp úr hádegi, sumir fóru í tíma eftir hádegi en aðrir voru búnir með sína skólaskyldu þennan dag.








