Félagslífið

13.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Það er nóg að gera í félagslífinu hjá unglingunum þessa dagana. Að kvöldi maskadagsins var hin árlega náttfatanótt í félagsmiðstöðinni og þykir mörgum hún afar spennandi. En stærsta ball ársins er líka í þessari viku, sjálft Rósaballið, sem verður haldið á fimmtudagskvöldið. Ástæðan fyrir tímasetningunni er sú að erfitt er að finna föstudag um þetta leyti þar sem ekki eru stórir hópar íþróttaiðkenda fjarverandi í keppnisferðum. Svo þetta varð niðurstaðan: ballið haldið á fimmtudagskvöldi og gefið frí í fyrstu tveimur kennslustundunum á föstudaginn. Margir hafa spurt hvort það sé skylda að koma sem "par" en það er alls ekki. Það er ódýrara að koma tvö og tvö saman en það mega allt eins vera tveir vinir eða tvær vinkonur - eða strákur og stelpa.