Fallhlífar
14.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag gerðum við tilraun með loftmótstöðu. Við bjuggum til fallhlífar úr plastpokum eða efnisbút. Við vorum með ferhyrndan efnisbút og bundum spotta í öll hornin og við spottana límdum við playmokarl. Síðan var farið fram á stigapall og fallhlífunum hent fram af. Þá svifu fallhlífarnar niður og lentu mjúklega á gólfunu. Krakkarnir skemmtu sér mjög vel og fóru nokkrar ferðir upp og niður til að endurtaka leikinn.








