Evrópuverkefni

11.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í þessari viku höfum við verið að vinna við lokaverkefni í landafræði. Það er hópverkefni þar sem að nemendur velja sér ákveðið Evrópuland og vinna með það. Hafa nemendur nokkuð frjálsar hendur varðandi úrvinnslu og uppsetningu, en þó eru ákveðin atriði sem þurfa koma fram. Verkefninu á að skila í síðasta lagi á miðvikudaginn 16. maí.


 


Í síðustu viku fengu nemendur bækling með upplýsingum um valfög sem verða í boði á næsta skólaári ásamt skráningablaði þar sem nemendur velja sér fög. Þetta átti að fara heim og þurfa nemendur að skila blöðunum með undirskrift foreldra í síðasta lagi 16. maí.


 


Í næstu viku hefjast lokaprófin. Á þriðjudaginn verður dönskupróf og á föstudaginn enskupróf.