Enskupróf, framsagnarpróf og fyrirhuguð vinnustöðvun
20.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Ég sendi krakkana heim með framsagnarprófið í dag.
Hvet ég alla nemendur til að koma vel undirbúnir í prófið á föstudaginn- mikilvægt er að lesa textann oft yfir og æfa sig vel.
Ráðlegt er að foreldri/forráðamaður hlusti a á upplestur barnsins heima og leiðbeini því evtv. um hvað megi betur fara.
Á bakhlið prófsins er tímasetning fyrir hvern nemanda ásamt nokkrum góðum upplestrar ráðum.
Að upplestri loknum á föstudaginn eiga þau að fara heim.
(Á fimmtudaginn er svo enskuprófið)
Ég vona að ekki komi til vinnustöðvunar kennara á morgun, miðvikudaginn 21.maí, og bið ykkur að fylgjast með fréttunum.
Kær kveðja, Erna.








