Elvar Logi í heimsókn

17.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á föstudag kom Elvar Logi í heimsókn í 1. bekk og var með mjög skemmtilega sýningu þar sem við fórum með honum í ævintýraheim. Þar hittum við ýmsar skrýtnar verur eins og þrjá  tröllabræður, feimnu Búkollu og fleiri.


 


Að lokum gaf hann báðum bekkjunum sitt hvorn hljóðdiskinn Galdrasögur og þökkum við honum kærlega fyrir sýninguna og gjafirnar.