Eldvarnagetraun í 3. bekk
12.02.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í desember komu þeir Hlynur og Hemmi frá slökkviliðinu í heimsókn til okkar að kynna okkur eldvarnir og þess háttar. Þá fengu allir í 3. bekk að taka þátt í eldvarnagetraun. Það er hefð að afhenda svo vinninga til vinningshafa getraunarinnar á 112 daginn, en þar sem ekki var skóli þann daginn hjá okkur, birtust þeir félagar óvænt í dag með verðlaun fyrir einn nemanda hjá okkur. Það var hún Guðrún Eva sem var svona heppin. Í verðlaun fékk hún viðurkenningaskjal, slökkviliðstímarit, reykskynjara og nýstraujaðan tíuþúsund króna seðil. Við óskum henni innilega til hamingju með vinninginn.








