Eitt og annað úr skólastarfinu

22.11.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í þessari viku hefur verið skáldakynning í skólanum og 10. bekkur hefur að sjálfsögðu tekið þátt í henni. Núna var það sjálfur Þórarinn Eldjárn sem var skáld vikunnar. Flestir nemenda þekkja hann og ljóðin hans en það var gaman að endurnýja þau kynni og lesa eitthvað nýtt og fræðast meira um þennan skemmtilega höfund. 


Í næstu viku lesum við búta úr bókinni Ég um mig, frá mér, til mín eftir Pétur Gunnarsson og ræðum um hana. 


 


Í ensku vorum við að byrja á nýjum kafla sem fjallar um Suður-Afríku. Það er gaman að heyra hvernig enskan er borin fram þar, öðruvísi en t.d. í Bretlandi eða Bandaríkjunum. Auk þess er mjög margt fróðlegt og merkilegt sem er fjallað um í kaflanum og það tengist ágætlega Comeniusar-verkefninu okkar því kynþáttafordómar koma þarna mikið við sögu.


 


Hjá okkur er staddur danskur gestakennari, Julie Fleischmann og því er lögð mikil áhersla á að æfa tal og hlustun í dönsku. Í næstu viku byrjar vinna við nýtt þemaverkefni með henni.


 


Í stærðfræði er þrívíddarverkefninu lokið og nú er haldið áfram að vinna í bókunum þar sem frá var horfið.


 


Félagslífið gefur engan grið, 1. des. ballið er næsta föstudag, 29. des. og mikill undirbúningur fyrir það, sérstaklega fyrir sýninguna sem að þessu sinni er Söngvaseiður. Sýningin hefst kl. 20.00 og svo er ballið á eftir, til kl. 23.30.


 


Í fjáröfluninni er dagatal næsta mál á dagskrá. Krakkarnir ætluðu að safna ljósmyndum úr eigu sinni eða fjölskyldna sinna, inn á Facebook-síðu árgangsins og velja svo úr þeim myndir til að prýða dagatalið. Þetta þarf að fara að gerast, svo ákveðið var að myndirnar ættu að vera komnar inn ekki seinna en miðvikudaginn 27. nóv.