Eitt og annað

04.02.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Sólarkaffisamsætið okkar gekk ljómandi vel, pönnsurnar voru góðar og nóg af þeim og allir hressir og kátir. Þegar allir voru orðnir saddir var farið í dansstofuna og tekið í spil, þessi gömlu góðu 52. Vonandi líður ekki á löngu þar til við hittumst næst.


 


Nemendur 8. bekkjar eiga von á i-pad til að nota í skólanum og er verið að leggja síðustu hönd á uppsetningu þeirra. Flestir foreldrar hafa þegar skrifað undir samning um notkun þeirra en þeir sem ekki hafa gert það geta nálgast samninginn hjá ritara skólans og eru beðnir að skrifa undir sem fyrst. 


Miðvikudaginn 28. janúar var haldinn kvöldfundur fyrir foreldra í sal skólans þar sem m.a. var sagt frá því hvernig i-padarnir verða notaðir og einnig var rætt um ýmis þróunarverkefni sem unnið er að í skólanum. Auk þess flutti Halla deildarstjóri erindi um netnotkun barna og öryggi þeirra á netinu. Mæting á fundinn var ágæt en þó ekki 100%.


 


Nú hafa verið settir upp tímar fyrir foreldraviðtöl á mentor og geta foreldrar sjálfir bókað sér tíma þann 11. febrúar. Fyrstir koma fyrstir fá, svo það er um að gera að draga ekki að skrá sig.