Eitt og annað
30.10.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Það er ýmislegt á döfinni hjá 8. bekk á næstunni. Við eigum von á Elísabetu Lorange eftir 10 daga til að halda sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir 8. bekk. Þá verður árganginum skipt í fjóra hópa og hver hópur verður hjá Elísabetu frá kl. 9:40 til 13:45 einn dag. Nánari upplýsingar frá krakkarnir í næstu viku.
12. nóvember verður foreldradagur í skólanum, þ.e. viðtöl kennara, nemenda og foreldra. Þann 6. nóv. verður opnað fyrir skráningu og þá geta foreldrar skráð sjálfir þann tíma sem þeim hentar fyrir viðtalið. Nemendur fá eyðublöð fyrir sjálfsmat 6. nóv. sem þeir eiga að fylla út heima í samráði við foreldra. Nemendur fá sem sagt ekki umsagnir kennara að þessu sinni, heldur eiga þeir að meta sjálfir frammistöðu sína.
Umsjónarkennararnir verða á ferðalagi í næstu viku vegna Comeniusarverkefnisins.








