Einelti og uppbygging

29.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Eineltisdagurinn var haldinn 8. nóvember og var ýmislegt gert til að undirbúa hann. M.a. höfðu nemendur 9. bekkjar útbúið glæsilega glærusýningu um einelti og við buðum vinabekknum okkar, 2. bekk í heimsókn til að sýna þeim glærurnar og ræða við þau um einelti. Glærurnar voru síðan sýndar með skjávarpa í anddyri skólans fram eftir deginum. 


En eineltisumræðan er ekki einskorðuð við einn dag á ári, það er nokkuð sem er stöðugt í gangi.


Hún kemur m.a. fram í vinnu með uppbyggingarstefnuna sem einnig er viðvarandi. Á undanförnum vikum höfum við verið að vinna að bekkjarsáttmálanum okkar og hann er á lokasprettinum, kominn upp á vegg í annarri stofunni og rétt ókominn í hinni. Sá sem er kominn upp hljómar svona:


 


"Þegar við vinirnir erum saman viljum við hjálpast að, treysta hvert öðru, hlæja, grínast og vera glöð. Við lifum aðeins einu sinni, nýtum tímann og lærum vel."