Danmark er dejlig !

26.04.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun fengu nemendur 6. bekkjar fræðslu frá Guðríði Sigurðardóttur, einum af dönskukennurum skólans, um Danmörku. 


 


Hún sýndi þeim myndir frá Danmörku og kenndi þeim m.a að segja góðan dag, bless, ég heiti og ég kem frá Íslandi.


 


 


Krakkarnir voru mjög áhugasamir og höfðu gagn og gaman af þessari heimsókn. 


 


Í 7. bekk byrjar dönskukennslan en kenndar eru þrjár kennslustundir á viku í dönsku.