Dagur íslenskrar tungu

14.11.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nk miðvikudag 16. nóvember er Dagur íslenskrar tungu og þá ætlar 2. og 9. bekkur sem eru vinabekkir að hittast og eiga saman skemmtilega stund í tilefni dagsins. 2. bekkur ætlar að sýna árshátíðaratriði sitt og nemendur úr 9. bekk ætla að lesa kafla úr uppáhaldsbarnabókum sínum, dansa og leika á hljóðfæri.