Dagur 4 - fimmtudagur
29.08.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þá er síðasti heili dagurinn okkar hér á Reykjum liðinn. Hann hófst á hefðbundinn hátt samkvæmt stundaskrá, en eftir hádegið var valtími. Hægt var að velja um íþróttir og sund, borðtennis, myndmennt og DVD myndband. Þeir 16 krakkar sem völdu borðtennis öttu kappi og stóð Kristófer frá Oddeyrarskóla uppi sem sigurvegari, en Daníel Wale hafnaði í 2. sæti og Þórður Gunnar í því 3.
Eftir valtímann var hafist handa við að greiða hármódelum fyrir hárgreiðslukeppnina, sem er alltaf mjög spennandi. Fjölmargir tóku þátt, en það var svo Róbert frá Oddeyrarskóla sem bar sigur úr býtum.
Í kvöld var svo kveðjustund og diskótek sem heppnaðist mjög vel. Krakkarnir pökkuðu því næst niður og eru klár til heimferðar í fyrramálið. Stefnt er að heimferð um kl. 9:00 og ætti þá heimkoma að vera á milli kl. 14:00 og 15:00.
Við viljum nota tækifærið og þakka krökkunum samveruna hér á Reykjum, en við erum hæstánægðar með hvernig til tókst. Hópurinn er sterkur og hefur þjappast saman á þessum dögum. Við hlökkum til að takast á við vetrarstarfið eftir svona vel heppnaða ferð.








