Dagur 3 - miðvikudagur
28.08.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Héðan er allt gott að frétta ef við sleppum því að tala um veðurspána. Við fylgjumst vel með henni og tökum ákvörðun á morgun, fimmtudag, varðandi heimferð og látum vita um leið og ákvörðun hefur verið tekin.
Í dag gekk lífið sinn vanagang og var mikið fjör á kvöldvökunni í kvöld þar sem mjög margir stjórnuðu atriðum og skemmtu okkur hinum. Annað kvöld verður svo diskótek sem margir er mjöööööög spenntir fyrir
Ekki má gleyma hárgreiðslukeppninni sem verður á morgun, en mér skilst að einn strákur hafi safnað hári í heil tvö ár til að taka þátt í keppninni. Nú þegar klukkan er 10 að kvöldi, þá eru stelpurnar einmitt að æfa hárgreiðslu og andlitsförðun á strákunum. Ég hlakka til að sjá afraksturinn.
Myndirnar streyma inn á síðuna og gaman að sjá hversu margir hafa séð þær. Njótið vel.








