Dagur 2 á Reykjum
27.08.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þá er dagur 2 senn á enda. Krakkarnir hafa haft nóg fyrir stafni í skipulagðri dagskrá, en einnig er nóg af frjálsum tíma, þar sem hægt er að vera uppi á vist og spjalla eða lesa, fara í sund, eða upp í Bjarnaborg og grípa í allskonar spil s.s. borðtennis og billjard.
Í kvöld var hakk og spaghettí í matinn og plokkfiskur í hádeginu. Kvöldhressingin gerði líka stormandi lukku, kleinuhringur og tvær tegundir af kexi.
Á kvöldvökunni í kvöld voru 8 atriði frá nemendum og voru okkar nemendur duglegir að skipuleggja atriði og taka þátt í þeim. Skólastjórnendur hafa haft það á orði að hópurinn sé mjög kurteis og skemmtilegur og er virkilega gaman að fá staðfestingu á því - sem við þó áður vissum.
Við höldum áfram að taka myndir úr skólabúðalífinu og setja inn að lágmarki einu sinni á dag.








