Dagur 1 á Reykjum
26.08.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Hópurinn kom hingað að Reykjum laust fyrir kl. 13:30 í dag eftir góða ferð að vestan. Við stoppuðum í Langadal og fengum okkur nesti og ferskt loft og sluppu allir við bílveiki.
Á Reykjum var vel tekið á móti okkur með súpu og brauði og allir sáttir við herbergin sín á ,,Grund". Nú eru allir komnir í skipulagða vinnu s.s. náttúrufræði utandyra, íþróttir og sund og stöðvavinnu.
Skólarnir sem eru með okkur eru Grunnskóli Bolungarvíkur, Grunnskólinn á Suðureyri og Oddeyrarskóli á Akureyri.
Við setjum inn myndir daglega og birtist vonandi fyrsti skammturinn hér inni á síðunni í kvöld.








