Comeniusarverkefni í 10. bekk
24.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Veturinn 2013-2014 vinnur 10. bekkur G.Í. að Comeniusarverkefni í samstarfi við skóla í Rúmeníu, Portúgal, Kýpur og Póllandi. Yfirskrift verkefnisins er: All different, all the same, Europe‘s children!
Verkefninu verður hrundið af stað á Evrópska tungumáladeginum 26. sept. og unnið jafnt og þétt allan veturinn. Áhersla verður á ýmiss konar samskipti, gagnkvæmar heimsóknir og samskipti á netinu. Samskiptin fara fram á ensku.
Nánari upplýsingar um verkefnið eru undir hnappnum Comeniusarverkefni hér vinstra megin á síðunni.








