Busaballið
09.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú er tíundi bekkur búinn að halda sitt fyrsta ball, busaballið sem var fimmtudagskvöldið 5. september. Það tókst svona líka ljómandi vel, mætingin var mjög góð og ágætis innkoma í ferðasjóðinn. Krakkarnir stóðu sig frábærlega við að skipuleggja og undirbúa ballið og ekki síður við að ganga frá. Allir hjálpuðust að, hópurinn var mjög samtaka og duglegur.
Síðast en ekki síst var nánast allur 10. bekkur mættur á ballið og virtust allir skemmta sér hið besta.








