Búningamál og þrotlausar æfingar fyrir Árshátíðina okkar !

21.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú eru flestir nemendur farnir að huga að búningunum sínum fyrir Árshátíðina sem nálgast óðum.


 


Nokkrir eru tilbúnir með búningana sína og vona ég að sem flestir komi með búning á mánudag, þriðjudag ef við á (einnig höfum við sótt heilmikið af fötum og munum í búningageymsluna) 


 


 


Ákveðinn spenningur er farinn að gera vart við sig hjá krökkunum, enda ávallt skemmtilegir dagar Laughing  Bæði undirbúningurinn og svo sjálfar sýningarnar.  Mín reynsla er sú að því afslappaðari og rólegri börnin eru því betur gengur undirbúningurinn !


 


Mikilvægt er því er að krakkarnir einbeiti sér áfram vel að náminu og daglegri rútínu skóladagsins, við fléttum æfingarnar svo inn í eftir því sem á líður.


 


Kveðja, Erna Sigrún.