Breytt skólalóð
05.04.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í vikunni voru lagðar fram tillögur að breyttu skipulagi skólalóðarinnar. Tveir nemendur frá hverjum árgangi fóru á kynningarfund þar sem tillögurnar voru kynntar. Fulltrúar 5. bekkjar voru þau Dagbjört Ósk og Guðmundur Elías. Eftir fundinn kynntu þau hugmyndirnar fyrir bekkjarsystkinum sínum og voru krakkarnir mjög ánægðir með það sem til stendur að gera. Helst höfðu þeir áhyggjur af því að lóðin yrði ekki tilbúin fyrr en þeir væru farnir úr skólanum, en við vonum það besta.








