Blíðviðri á vorverkadegi

28.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Veðrið lék aldeilis við okkur í dag á vorverkadegi skólans. Þó að sólin hafi ekki mikið sýnt sig, þá var milt og þurrt, sem kom sér afar vel fyrir útivinnuna.


Nemendur stóðu sig með mikilli prýði í öllum þeim verkum sem fyrir þá voru lögð. Sjá má eitthvað af myndum hér inni á myndasíðunni vinstra megin á síðunni.