Blaðapassinn
08.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Morgunblaðið býður skólum landsins upp á svokallaðan Blaðapassa fyrir nemendur. Við í 6. bekk nýttum okkur það tilboð síðustu tvær vikur og fengum Morgunblaðið í nokkur skipti. Auk þess fengum við vinnubók sem heitir Blaðapassinn, til að vinna fjölbreytt verkefni upp úr Morgunblaðinu.
Þessi vinna tókst vel og fannst krökkunum gaman. Þau eru nú læsari á dagblöð og gera sér betur grein fyrir uppbyggingu þeirra, auk þess sem þau fylgdust með því sem var að gerast í heiminum öllum.








