Bekkjaskemmtun

06.12.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Krakkarnir í 1. bekk eru búnir að vera mjög duglegir í skólanum í allan vetur. Þeir hafa lært fullt af stöfum,  meira segja farnir að lesa og allir eru búinir að læra samlagningu og frádrátt.  Af þessu tilefni ákváðum við að slá upp bekkjaskemmtun, þar sem allir máttu koma með 1 dót að heiman og smá nammi.  Bekkirnir hittustu og dönsuðu Ásadans og sungu nokkur jólalög saman. Að því loknu var gefinn frjáls tími þar sem leika mátti með dótið.  Kristín dró fram stóran kassa utan af nýju ljósritunarvélinni og var hann mjög vinsæll.  Breyttist kassi  m.a. í strætó og pott og ýmiss ævintýr urðu til í kringum hann.  Það má segja að krakkarnir í 1. bekk eru mjög hugmyndaríkir og skapandi í leik og starfi.