Bekkjarskemmtun

27.03.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun héldum við bekkjarskemmtun og viljum við þakka ykkur kæru foreldrar fyrir veitingarnar. Við áttum góðar stundir hér í skólanum og þá er tilganginum náð. Með þessu móti vildum við þakka krökkunum fyrir frábæra árshátíð og allt sem henni fylgdi. Þau stóðu sig með miklum sóma og vonandi fara allir glaðir inn í páskaleyfið, sem hefst frá og með mánudeginum. Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 7. apríl og sendum við þá nýja vikuáætlun. 
Gleðilega páska, Auður & Helga.