Bekkjarskemmtun

27.11.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Bekkjarskemmtunin í dag fór vel fram.  Margir nemendur voru með hin ýmsu atriði.  Sagðir voru brandarar, farið með gátur, spilað á hljóðfæri, sungið,  töfrabrögð sýnd og lögð brella fyrir saklausan sjálfboðaliða.  Eftir sýninguna héldum við öll saman inn í stofu þar sem spil og ýmislegt fleira var í boði.  Fleiri myndir eru á myndasíðunni okkar.