Bekkjarnámskrá
12.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Bekkjarnámskrá 4. bekkjar
Umsjónarkennarar: Árný Herbertsdóttir og Laufey Eyþórsdóttir
Sérkennari: Berglind Árnadóttir
Námstilhögun og Í 4. bekk eru 26 nemendur.
kennsluaðstæður: Kennt er í stofu 117 og aukastofu
Íslenska
Kennarar: Árný Herbertsdóttir og Laufey Eyþórsdóttir
LESTUR:
Markmið:
Stefnt er að því að allir nemendur verði vel læsir og geti lesið margs konar texta sér til gagns og ánægju. Áhersla verður lögð á góðan og skýran framburð jafnt í upplestri sem í tali. Nemendur flytja texta fyrir áheyrendur. Nemendur eru hvattir til að temja sér bóklestur og gera hann að sjálfsögðum hluta daglegs lífs. Stefnt er að því að nemendur hafi náð a.m.k.190 atkvæðum í lestrarhraða að vori.
Námsefni:
Lestrarbækur, ýmist að eigin vali eða valdar af kennurum, vinnubækur og verkefni.
Hljóðlestur:
Áhersla verður lögð á að nemendur lesi í hljóði, bækur að eigin vali, í skólanum. Þeir eru einnig hvattir til að lesa í hljóði heima.
Heimavinna: Nemendur eiga að lesa upphátt heima 5 sinnum í viku.
Námsmat:
Hraðlestrarpróf eru á sex vikna fresti.
Lesskilningspróf er á haustönn og vorönn.
Framsagnarpróf er á vorönn.
SKRIFT OG RITUN:
Markmið:
Nemendur þjálfist í að skrifa margs konar texta frá eigin brjósti eða eftir heimildum. Nemendur geti skrifað læsilega og áferðarfallega ítalska skrift og þjálfist í að skrifa tengda skrift.
Nemendur leggi sig fram um að stafsetja rétt og skrifi daglega í skólanum.
Námsefni/
viðfangsefni:
Ritun er m.a. æfð með því að halda dagbók og skrifa sögur og ritgerðir af ýmsum toga. Auk þess eru notaðar bækurnar Skrift 4 eða 5, Ítalíuskrift o.fl. Unnið er með vísur, ljóð, upplestur og söng.
Námsmat:
Námsmat samkvæmt nýju námsmati GÍ.
Samræmt próf í íslensku í september.
Stærðfræði
Kennarar: Árný Herbertsdóttir og Laufey Eyþórsdóttir
Markmið:
Unnið verður áfram með undirstöðuatriði stærðfræðinnar, hugtök og tákn. Nemendur nái auknum tökum á samlagningu, frádrætti, margföldun, deilingu, mælingum, rúmfræði og fl. Nemendur geti fundið ólíkar leiðir við lausn verkefna, skráð niðurstöður og rætt um stærðfræðileg verkefni.
Námsefni:
Sproti 4a og 4b og æfingahefti. Stefnum á deilingu, Í undirdjúpunum, margföldun og deiling, vasareiknishefti og ýmis verkefni valin og útbúin af kennurum.
Námsmat:
Próf á haustönn og vorönn. Samræmt próf í september.
Samfélagsfræði
Kennarar: Árný Herbertsdóttir og Fríða Rúnarsdóttir
Markmið:
Nemendur læri að nota margs konar kort.
Kynnist landnámi Íslands og örnefnum og merkum stöðum í heimabyggð. Þeir bæti við þekkingu sína á samfélaginu og mannkyns- sögunni. Nemendur kynnist mismunandi lifnaðarháttum í heitu og köldu landi og kynnist norrænum goðsögum. Nemendur læri og rifji upp helstu reglur sem gilda í umferðinni.
Námsefni/
Komdu og skoðaðu sögu mannkynsins, Góða ferð. Kort og kortabækur. Ýmsar handbækur. Verkefni útbúin af kennurum.
Námsmat:
Námsmat samkvæmt nýju námsmati GÍ
Trúarbragðafræði
Kennarar: Árný Herbertsdóttir og Fríða Rúnarsdóttir
Markmið:
Að nemendur efli siðferðisvitund sína, samkennd, víðsýni og umburðarlyndi. Að þeir fræðist um önnur trúarbrögð, lífsviðhorf og menningu og temji sér virðingu gagnvart þeim.
Nemendur kynnist betur sögum úr Biblíunni og fræðist um þjóðkirkjuna og kirkjulegar hátíðir.
Námsefni:
Birtan og hefti námsgagnastofnunar um önnur trúarbrögð.
Námsmat:
Námsmat samkvæmt nýju námsmati GÍ.
Náttúrufræði
Kennarar: Árný Herbertsdóttir og Laufey Eyþórsdóttir
Markmið:
Að nemendur auki þekkingu sína og áhuga á náttúrunni í kring um sig. Nemendur geri sér grein fyrir árstíðabundnum breytingum á náttúrunni.
Námsefni:
Náttúran allan ársins hring. Margs konar handbækur og ítarefni. Einnig er margt samþætt samfélagsfræði.
Námsmat:
Námsmat samkvæmt nýju námsmati GÍ.
Lífsleikni
Kennarar: Árný Herbertsdóttir og Laufey Eyþórsdóttir
Markmið:
Að hafa uppbyggingu að leiðarljósi, að vinna gegn einelti og efla félagsþroska nemenda. Umferðarfræðsla.
Námsefni:
Farið yfir atriði samkvæmt uppbyggingarstefnunni. Unnið eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Einnig verður farið í félagshæfni og litahegðun.
Námstilhögun:
Bekkjarfundir, val og samvera. Farið verður í ýmsar samskiptasögur, leiki og spil og ýmislegt sem þjálfar nemendur í að eiga samskipti við aðra og að koma vel fram.
Námsmat:
Námsmat samkvæmt nýju námsmati GÍ
Upplýsingatækni
Kennarar: Árný Herbertsdóttir og Laufey Eyþórsdóttir
Markmið:
Að nemendur geti notað rit- og myndvinnsluforrit og náð í upplýsingar af netinu.
Að þeir læri rétta fingrasetningu.
Nemendur auki við þekkingu sína og notkun á bókasöfnum.
Námsmat:
Námsmat samkvæmt nýju námsmati GÍ.
Námstilhögun:
Kennt er í verkgreinahúsinu. Nemendur fá 1 kennslustund á viku, samþætt öðrum námsgreinum.
Textílmennt
Kennari: Fríða Rúnarsdóttir.
Markmið:
Æfa saman hug og hönd, kynnast ólíkum efnum og áherslum, auk þess að njóta sköpunar og læra einfaldar vinnuaðferðir og vandvirkni. Efla sjálfstraust og sjálfstæði nemenda.
Námsefni:
Nemendur læra að prjóna garðaprjón og einnig vélsaum.
Námstilhögun:
Kennt er í handmenntastofu í verkgreinahúsinu. Nemendur fá 4 kennslustundir á viku í 12 vikur.
Námsmat:
Vinnubrögð eru metin í maí .
Tæknimennt
Kennari: Elvar Reynisson
Markmið:
Að nemandinn læri margs konar vinnubrögð, hagkvæma vinnustellingu og rétta notkun verkfæra.
Námstilhögun:
Kennt er í verkgreinahúsinu.
Nemendur fá 4 kennslustundir á viku í 12 vikur. Kennd er notkun algengustu handverkfæra til smíða, einkum er kennt að saga með útsögunarsög og bakkasög, einnig að nota þjöl og sandpappír.
Vandvirknikröfur eru gerðar miðað við þroska nemenda og reynt að örva vinnugleði þeirra.
Námsmat:
Verkefni og vinnubrögð nemenda eru metin. Einnig er tekið tillit til framkomu nemenda, sjálfstæðra vinnubragða og virkni þeirra í tímum.
Myndmennt
Kennarar: Árný Herbertsdóttir og Rannveig Gissurardóttir
Markmið:
Að nemendur vinni með rými í myndgerð. Að nemendur þekki grunnformin og læri muninn á mjúkum og hörðum formum. Skoðuð nálægð og fjarlægð, unnin ein mynd. Að nemendur þekki 6-lita hringinn, hugtökin grunnlitir, andstæðulitir, læri litablöndun og myndgerð og skissuvinnu. Einnig unnið með kalda og heita tóna.
Námstilhögun:
Kennt 2 tíma á viku, allan veturinn.
Námsefni:
Listaverka- og handbækur. Efni af netinu, dagblöð, tímarit og fleira sem til fellur.
Námsmat:
Færni, Vinnubrögð, frágangur, hegðun og ástundun. Lokaeinkunn byggist á símati
Heimilisfræði
Kennari: Guðlaug Jónsdóttir
Markmið:
Að nemendur þjálfist í meðferð áhalda og tækja. Að nemendur geti matreitt einfalda rétti og bakað eftir uppskriftum og leiðbeiningum. Að nemendur geri sér grein fyrir slysahættu og varist slysin. Að nemendur geri sér grein fyrir mikilvægi hreinlætis við matreiðslustörf. Að auka skilning nemenda á tengslum hollustu og heilbrigði. Að nemendur átti síg á að endurnýting getur leitt til sparnaðar og betra umhverfis.
Námstilhögun:
Hver nemandi fær 4 tíma á viku í u.þ.b.12 vikur.
Námsefni:
Kennslubók: Hollt og gott.
Námsmat:
Einkunn fyrir færni gefin að vori í tölustöfum. Einnig fá nemendur einkunnir í bókstöfum fyrir þá þætti sem falla undir gildi skólans – virðing, samhugur, menntun (sjá nánar matslista).
Enska
Kennari: Laufey Eyþórsdóttir
Markmið:
Að byggja upp áhuga og jákvætt viðhorf til tungumálsins og skapa aðstæður þar sem nemendur geta notað málið á einfaldan hátt. Notuð verður tónlist, hreyfingar og ímyndun í leik ásamt námsbók.
Námstilhögun:
Kennt er einn tíma á viku.
Námsefni:
Right on og Bookless beginners.
Námsmat:
Námsmat samkvæmt nýju námsmati GÍ.
Íþróttir
Kennarar: Árni Heiðar Ívarsson, Jón Hálfdán Pétursson og Guðný Stefanía Stefánsdóttir.
Markmið:
Meginmarkmið skólaíþrótta er að stuðla að almennum hreyfiþroska, efla samvinnu og hæfileika til tjáningar og sköpunar.
Námstilhögun:
Hver nemandi fær 2 íþróttatíma á viku og 1 sundtíma. Kennslan fer fram í Íþróttahúsinu við Austurveg.
Námsmat:
Skriflegar umsagnir gefnar í samræmi við námsferil vetrarins. Mæting, framkoma og virkni einnig metin.
Dans
Kennari: Sigurrós Eva Friðþjófsdóttir.
Markmið:
Að nemendur efli hreyfigetu, læri einfalda samsetningu grunnspora í algengum dönsum og öðlist samhæfingu handa og fóta. Að nemendur geti skynjað hrynjandi og sérkenni hennar í hreyfingu og tónlist. Að nemendur temji sér almennar kurteisivenjur í samskiptum og taki tillit til annarra.
Námstilhögun:
Kennt er einu sinni í viku í stofu 122
Námsgögn:
Geisladiskar, efni af netinu og myndir af DVD diskum.
Námsmat:
Lykilhæfni sem samanstendur af verklegri vinnu og öðrum verkefnum (símati) frá kennara samkvæmt námsmati GÍ
Tónmennt
Kennari: Árný Herbertsdóttir
Markmið:
Að nemendur læri sígild sönglög og læri að njóta þess að syngja. Læri um takt, hraða og tónhæð. Að nemendur hlusti á tónlist af ýmsu tagi og kynna hana hvert fyrir öðru. Þeir horfa á söngvamynd og sjá hvernig tónlist hefur áhrif á umhverfi og menningu okkar.
Námstilhögun:
Kennt er einu sinni í viku, sungið, hlustað og horft á ýmiskonar tónlistarefni.
Námsgögn:
Nemendur safna söngblöðum í hefti, hlusta á ýmiskonar tóndæmi og spila á ásláttarhljóðfæri.
Námsmat:
Ekkert formlegt námsmat.
Útivist
Kennarar: Árný Herbertsdóttir og Jón Hálfdán Pétursson
Markmið:
Að nemendur styrki gróf- og fínhreyfingar. Byggja upp almenna líkamshreysti og þrek. Efla jákvætt viðhorf til hreyfingar og jákvæða sjálfsmynd. Að nemendur svali hreyfiþörf og nýjungagirni, þekki nánasta umhverfi skólans og njóti þess að vera úti í náttúrunni.
Námstilhögun:
Kennt er einu sinni í viku.
Námsmat:
Ekkert formlegt námsmat.
Félagslíf
Auk hefðbundinna skemmtana skólans verða bekkjarskemmtanir tvisvar í vetur, önnur fyrir áramót en hin eftir áramót, sem tengiliðir bekkjarins skipuleggja.
Foreldrasamstarf
Umsjónarkennari leggur mikla áherslu á gott samstarf við foreldra. Í september er fundur með foreldrum þar sem ýmis málefni hvað skólaárið varðar eru kynnt. Foreldradagar verða tvisvar, 13.nóvember og 6. febrúar. Þá verða einkaviðtöl foreldra, nemenda og kennara. Kennarar hafa ekki fasta símatíma en oftast er hægt að ná tali af þeim í skólanum eftir kennslu. Ef kennarinn er vant við látinn tekur ritarinn við skilaboðum og kennarinn hefur þá samband eins fljótt og hægt er. Einnig er hægt að senda tölvupóst.
Á það skal lögð áhersla að foreldrar eru ávallt velkomnir í skólann , hvort heldur er á skemmtanir eða í heimsókn á venjulegum skóladegi.
Annað
Námsgreinar skarast töluvert í 4. bekk og ekki er alltaf auðvelt að greina á milli þeirra. Hér hefur verið reynt að geta flestra námsbóka og verkefna en oft ná sömu bækur yfir fleiri en eina námsgrein.








