Beðið eftir go.com air

26.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Föstudaginn 28. nóvember sýnir leiklistarval skólans leikritið Beðið eftir go.com air  eftir Ármann Guðmundsson, í leikstjórn Guðnýjar Hörpu Henrysdóttur.


Frumsýningin hefst kl. 19:30 og er önnur sýning áætluð á laugardag kl. 14:00.


Löng hefð er fyrir því að nemendur setji upp leikrit í tengslum við 1. desember og verður svo dansleikur að sýningu lokinni á föstudagskvöld, fyrir unglingastig skólans.