Baráttudagur gegn einelti.
07.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á morgun 8. nóvember er alþjóðlegi baráttudagurinn gegn einelti. Af því tilefni höfum við unnið með bókina Ýma tröllastelpa í Byrjendalæsinu þessa vikuna og í næstu viku ætlum við að vinna áfram með þetta efni og taka fyrir söguna um indjánastelpuna Litlu ljót. Ýma er tröllastelpa sem gengur í skóla með mannabörnum. Ýmu finnst erfitt að vera öðruvísi og sumir skólafélagar hennar koma illa fram við hana þess vegna og skilja hana útundan. Ýma tekur líka þátt í að stríða bekkjarbróður sínum af því hún þráir að falla inn í hópinn. En allt fer vel að lokum. Við erum búin að spjalla mikið um þetta, skoða litahegðun hjá sögupersónunum og í framhaldi af því skoða eineltishringinn. Aumingja Ýma sýndi gráa og gula hegðun þegar hún girti niður um skólabróður sinn, hún lét nefninlega aðra stjórna sér og gerði eins og þeir sögðu þótt hún vissi að það væri rangt. En hún sá að sér og sýndi mikið hugrekki með því að segja kennaranum frá öllu eineltinu, líka því sem hún gerði og fékk hjálp. Allir krakkarnir í 1. bekk eru sammála um að þeir vilja ekkert einelti í skólanum og ætla að leggja sitt að mörkum og segja frá ef þeir eða aðrir eru lagðir í einelti. Það á alltaf að segja kennaranum eða starfsfólkinu í skólanum eða mömmu og pabba frá ef einhver er lagður í einelti.








