Ávaxtarannsókn
22.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Fjórði bekkur er núna að fjalla um plöntur, forðanæringu og aldin í náttúrufræðinni. Við erum að skoða hvernig plöntur búa sig undir veturinn og undirbúa það að fjölga sér. Í þessari viku skoðuðum við margvísleg aldin og rætur. Helga kennari kom með marga mismunandi ávexti og grænmeti. Í sumum voru fræ t.d. í melónu og appelsínu en svo voru líka rófa og kartafla sem höfðu engin fræ, því þær er forðanæring plöntunnar fyrir næsta sumar. Við skoðuðum lögun og stærð, skárum aldinin síðan í sundur, rannsökuðum og teiknuðum þau að lokum í vinnubókina okkar. Við komumst að því flestir ávextir hafa hýði, aldinkjöt og fræ. Sumir hafa bara eitt fræ líkt og plóma á meðan aðrir eru með mjög mörg fræ líkt og melónan. Að lokum skar Helga allt niður í bita og við slógum upp veislu.








