Ársskýrsla stjórnar skólaárið 2011-2012
02.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í mörg ár hefur Foreldrafélag verið starfandi við Grunnskólann á Ísafirði. Félagar í því félagi eru foreldar og forráðamenn nemenda við Grunnskólann á Ísafirði. Um 270 heimili standa að baki félaginu.
Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Ísafirði (hér eftir nefnt FFGÍ) fór fram þann 15. september 2011. Mjög léleg mæting var á fundinn og þurfti að boða til framhaldsaðalfundar sem fór fram þann 27. september sem var nokkuð betur sóttur. Á aðalfundinum lét Sóley Veturliðadóttir, formaður FFGÍ, af störfum og gekk sömuleiðis úr stjórn sem og Arna Björk Sæmundsdóttir. Áfram sátu í stjórn Þórdís Lilja Jensdóttir, gjaldkeri og Martha Lilja Marthensdóttir Olsen, meðstjórnandi. Nýir inn í stjórn komu Thelma Hjaltadóttir, formaður, Heiðrún Tryggvadóttir, ritari og Birna Lárusdóttir og Steinþór Bragason meðstjórnendur.
Stjórn FFGÍ hittist alls 6 sinnum í vetur auk þess að eiga í töluverðum tölvupóstssamskiptum. Helstu mál sem stjórnin lagði áherslu á voru m.a.:
Skólalóðarmál. Stjórn FFGÍ fékk fulltrúa GÍ og Margréti Halldórsdóttur, forstöðumann Skóla- og tómstundasviðs Ísafjarðarbæjar á sinn fund til að ræða framtíðarskipulag skólalóðarinnar. Í kjölfarið sendi stjórn FFGÍ bréf til bæjarráðs þar sem stjórnin benti á nauðsyn þess að skólalóðarmál yrðu tekin til gagngerrar endurskoðunar sem fyrst og lagði fram fjármagn og hugsanlegt vinnuafl þegar að framkvæmdum kæmi. Viðbrögð við þessu bréfi bárust seint og illa og undir vor var ljóst að ekkert yrði aðhafst við skólalóð GÍ þetta árið.
Samráðsfundir við skólastjórnendur. Stjórnin lagði til við stjórnendur GÍ að komið yrði á samráðsfundi milli skólastjórnenda og stjórnar FFGÍ og jafnvel fleiri aðila. Var einn fundur haldinn með stjórn FFGÍ og skólastjórnendum og annar með stjórn FFGÍ, bekkjarfulltrúum og skólastjórnendum. Tókust þessir fundir vel og er það von stjórnar að slíkir fundir verði fastir liðir á næsta skólaári og jafnvel að þeir verði stækkaðir þ.a. fleiri foreldrar komi að umræðunum.
Styrkir. Foreldrafélagið styrkti Grunnskólann á Ísafirði með ýmsum hætti skólaárið 2011-2012. Á haustmánuðum var skólastjórnendum afhentur styrkur sem fyrri stjórn hafði ákveðið að upphæð 100.000 kr. Á vormánuðum var tónlistarverkefnið Tónlist fyrir alla styrkt um 50.000 kr. svo nemendur GÍ ættu þess kost að taka þátt í verkefninum. Í maí var síðan ákveðið að kaupa tvo skjávarpa og færa skólanum.
Bókaátak. Foreldrafélagið stóð fyrir bókasöfnun fyrir skólabókasafnið í samvinnu við Eymundsson. Gátu foreldrar keypt bækur í bókabúðinni, skilið þær eftir og þær voru síðan afhentar skólanum.
Heimasíða. Félagið fékk undirsíðu á nýrri heimasíðu Grunnskólans, www.grisa.isafjordur.is þar sem finna má helstu upplýsingar um félagið og þar eru allar fundargerðir birtar. Sömuleiðis stofnaði stjórn FFGÍ Facebook-síðu fyrir foreldra.
Ýmisleg smærri mál komu inn á borð félagsins sem ekki verða tíunduð hér en ljóst að næg verkefni á hinum ýmsu sviðum bíða FFGÍ á nýju skólaári.








