Ársskýrsla FFGÍ fyrir skólaárið 2012-2013
04.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í mörg ár hefur Foreldrafélag verið starfandi við Grunnskólann á Ísafirði. Félagar í því félagi eru foreldar og forráðamenn nemenda við Grunnskólann á Ísafirði. Um 180 heimili standa að baki félaginu.
Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Ísafirði (hér eftir nefnt FFGÍ) fór fram þann 2. október 2013. 20 foreldrar mættu á aðalfundinn. Enginn stjórnarmaður gekk úr stjórn en hlutverkaskipti urðu innan stjórnar. Stjórnina skipa Heiðrún Tryggvadóttir formaður, Þórdís Lilja Jensdóttir gjaldkeri, Thelma E. Hjaltadóttir ritari, Birna Lárusdóttir og Martha Lilja Marthensdóttir Olsen meðstjórnendur . Í framhaldi af aðalfundi var Margrét Pála stofnandi Hjallastefnunnar og skólastjóri á Tálknafirði með erindi um börn, skólagöngu og foreldra.
Stjórn FFGÍ hittist nokkrum sinnum í vetur auk þess að eiga í töluverðum tölvupóstssamskiptum. Helstu mál sem stjórnin lagði áherslu á voru m.a.:
Skólalóðin. Eitt af helstu baráttumálum núverandi stjórnar FFGÍ hefur verið bætt skólalóð. Nú hyllir undir framkvæmdir en ljóst er að þær munu taka einhvern tíma og dreifast á nokkur skólaár. Innan stjórnar hefur komið upp sú hugmynd að hrinda af stað söfnun næsta vetur á meðal fyrirtækja í bænum og safna þannig fyrir nýjum leiktækjum á skólalóðina. Söfnunin verður kynnt frekar þegar nær dregur.
Bókaátak. Foreldrafélagið stóð fyrir bókasöfnun fyrir skólabókasafnið á foreldraviðtalsdegi þann 14. nóvember 2012. Gátu nemendur og foreldrar/forráðamenn þeirra komið með notaðar bækur og skilið eftir í þar til gerðum kössum á göngum skólans. Söfnuðust um 100 bækur í söfnuninni.
Jólaföndur. Laugardaginn 1. desember 2012 stóð Foreldrafélagið fyrir jólaföndri í sal skólans. Mjög góð mæting var á föndrið en hátt í 200 börn, foreldrar og ættingjar mættu og föndruðu saman, drukku kakó og borðuðu piparkökur.
Fyrirlestur með Hugo Þórissyni. Þann 31. janúar 2013 stóðu foreldrafélög grunnskólanna á norðanverðum Vestfjörðum fyrir vel heppnuðum fyrirlestri með Hugo Þórissyni sálfræðingi um samskipti foreldra og barna. Um 120 foreldrar frá Ísafirði, Bolungarvík, Súðavík, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri mættu og hlýddu á áhugaverðan fyrirlestur Hugos. Þetta er í fyrsta sinn sem foreldrafélögin hér á norðanverðum Vestfjörðum taka svona höndum saman og er stjórn FFGÍ mjög ánægð með samstarfið og vonar að áframhald verði á slíku samstarfi í framtíðinni.
Samráðsfundir við skólastjórnendur. Stjórnin hefur lagt á það áherslu við stjórnendur GÍ að hittast á reglulegum samráðsfundum að hausti og að vori. Voru tveir slíkir fundir í vetur, annar í október og hinn í maí. Tókust þessir fundir vel og er það von stjórnar að slíkir fundir verði fastir liðir og jafnvel að þeir verði stækkaðir þ.a. fleiri foreldrar komi að umræðunum.
Foreldrar eiga tvo fulltrúa í skólaráði en skólaráð er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald.
Styrkir. Foreldrafélagið hefur veitt nokkra smáa styrki í vetur en hefur að mestu haldið í sjóð sinn svo hægt verði að veita myndarlegan styrk til skólalóðarmála þegar þar að kemur en fyrir liggur samþykkt stjórnar FFGÍ um myndarlegt framlag til uppbyggingar nýrrar skólalóðar þegar þar að kemur.
Fréttabréf. Stjórn FFGÍ tók þá ákvörðun í haust að gefa út fréttabréf þar sem sagt væri frá helstu verkefnum FFGÍ. Komu í vetur út 3 slík sem send voru foreldrum/forráðamönnum í tölvupósti. Viðtökur voru góðar og er stefnt að áframhaldandi útgáfu næsta vetur.
Ýmisleg smærri mál komu inn á borð félagsins sem ekki verða tíunduð hér en ljóst er að næg verkefni á hinum ýmsu sviðum bíða FFGÍ á nýbyrjuðu skólaári. Allar hugmyndir og athugasemdir sem varða Foreldrafélagið eða málefni því tengdu eru vel þegnar, þetta er félagið okkar allra og gott og öflugt foreldrafélag skiptir miklu máli í skólastarfi.
Breytingar á stjórn. Ljóst er að breytingar verða á stjórn félagsins. Úr stjórn ganga Martha Lilja Marthensdóttir Olsen meðstjórnandi sem flutt er til Akureyrar og Þórdís Lilja Jensdóttir gjaldkeri sem gefur ekki kost á sér til endurkjörs en hún hefur verið í stjórn foreldrafélagsins í 9 ár. Þökkum við þeim tveimur kærlega fyrir gott samstarf. Við hinar sem eftir erum í stjórn erum allar að ljúka tveggja ára tímabili í stjórn og gefum kost á okkur til endurkjörs.








