Árshátíðarvinna
15.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í þessari viku höfum við verið að æfa leikrit fyrir árshátíðina. Krakkarnir standa sig eins og hetjur, flestir kunna rulluna sína, danssporin og söngvana utanað nú þegar og allt að smella saman. Krakkarnir leggja á sig mikla vinnu og sýna mikinn metnaði fyrir hönd bekkjarins. Það eru sannarlega fjölhæfir og dugmiklir krakkar í 4. HA. Afraksturinn fáið þið svo að sjá á árshátíðarsýningunum næsta fimmtudag 21. mars og föstudaginn 22. mars kl. 9. Allir foreldrar og ættingjar og vinir eru velkomnir á föstudagssýninguna, hún er ætluð krökkunum í 3. - 4. bekk og aðstandendum þeirra.








