Árshátíðarundirbúningur
01.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú eru þrjár vikur í árshátíð skólans, en hún verður haldin dagana 21. og 22. mars n.k. Árgangurinn er búinn að ákveða sitt atriði og í næstu viku verður hafist handa við æfingar. Við leggjum áherslu á að allir nemendur árgangsins taki þátt og stígi á svið og er það eflaust krefjandi fyrir marga.








