Árshátíð lokið og allir glaðir
04.04.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Það voru glaðir krakkar sem sýndu leikritið sitt í fjórða sinn í morgun og mér sýndist allir fara sáttir inn í helgina.
Allur undirbúningur sem og sýningarnar voru krökkunum og mér til sóma.
Þá er ein vika eftir í hefðbundinni kennslu og svo siglum við inn í páskafríið á föstudaginn næsta
Myndir frá Árshátíðinni eru komnar inn á myndasíðuna okkar http://grisa.isafjordur.is/kerfi/myndakerfi/list/








