Árshátíð G.Í.

01.04.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


Árshátíð Grunnskólans á Ísafirði verður haldin fimmtudaginn 3., föstudaginn 4. og mánudaginn 7. apríl n.k. Þar munu allir árgangar stíga á stokk og sýna atriði sín undir yfirskriftinni  Öll ólík - öll eins.


 


Síðustu dagar hafa einkennst af undirbúningi fyrir árshátíðina, enda er mikið í lagt og allir nemendur skólans koma að skipulagningunni á einn eða annan hátt, þó svo að ekki alveg allir stígi á svið, en langflestir þó. Skólinn býður upp á sex sýningar til að koma öllum að og er aðgangseyrir kr. 1.000 sem rennur í ferðasjóð verðandi 7. bekkjar fyrir skólabúðaferð að Reykjum í Hrútafirði næsta haust.


 


 


1. sýning  – fimmtudaginn 3. apríl kl. 9:00.


Flytjendur: 1. – 7. bekkur.


Áhorfendur:  Nemendur í 1. og 2. bekk og foreldrar/gestir þeirra.


 


2. sýning  – fimmtudaginn 3. apríl kl. 11:00.


Flytjendur: 5.–10. bekkur


Áhorfendur: Nemendur í 5.–7. bekk og gestir (t.d. þeir sem ekki komast á öðrum tíma)


 


3. sýning  – fimmtudaginn 3. apríl kl. 20:00.


Flytjendur: 5.–10. bekkur


Áhorfendur: Foreldrar, gestir og almenningur.  Þetta er  ekki  nemendasýning.


 


4. sýning  – föstudaginn 4. apríl kl. 9:00.


Flytjendur: 1. – 7. bekkur.


Áhorfendur: Nemendur í 3. og 4. bekk og foreldrar/gestir þeirra.


 


5. sýning  – föstudaginn 4. apríl kl. 20:00.


Flytjendur: 7.–10. bekkur,


Áhorfendur: Nemendur í 8.–10. bekk og foreldrar/gestir þeirra


Ball (fyrir nem. 8.-10. bk.) er að lokinni sýningu til miðnættis.


 


6. sýning mánudaginn 7. apríl kl. 10:00


Flytjendur: 1.-4.bekkur


Áhorfendur: Tveir elstu árgangar leikskólanna og unglingastig G.Í.