Árshátíð

31.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


ÁRSHÁTÍÐ  GÍ  2014


 ,,Öll ólík, öll eins ”


 


Árshátíð GÍ verður haldin á sal skólans fimmtudaginn 3. og föstudaginn 4. apríl  nk.  Kennslu- og viðverutími margra bekkja raskast nokkuð í árshátíðarvikunni. Kennarar veita frekari upplýsingar um það og tilkynningar verða settar á heimasíðu skólans ef þörf krefur. Yfirskrift árshátíðar að þessu sinni er ,,Öll ólík, öll eins ”.   Það er ákvörðun hvers bekkjar hvernig unnið er með viðfangsefnið en án efa verður það gert með margvíslegum hætti.


Fyrirkomulag sýninga verður með sama hætti og fyrri ár.  Erfitt er að áætla lengd hverrar skemmtunar en í ljósi reynslunnar má gera  ráð fyrir 1 til 1½ klst.   Gestum er bent á að virða óskir skólans varðandi það á hvaða sýningar fólk á að mæta.  Við hvetjum gesti til að sitja skemmtunina til enda.  Það hefur töluvert rask og óþægindi í för með sér að yfirgefa sýningu áður en henni lýkur. 


 


Sýningar:


1. sýning – fimmtudaginn 3. apríl kl. 9:00.


Flytjendur: 1. – 7. bekkur.


Áhorfendur:  Nemendur í 1. og 2. bekk og foreldrar/gestir þeirra.


 


2. sýning – fimmtudaginn 3. apríl kl. 11:00.


Flytjendur: 5.–10. bekkur


Áhorfendur: Nemendur í 5.–7. bekk og gestir (t.d. þeir sem ekki komast á öðrum tíma)


 


 


3. sýning – fimmtudaginn 3. apríl kl. 20:00.


Flytjendur: 5.–10. bekkur


Áhorfendur: Foreldrar, gestir og almenningur.  Þetta er ekki nemendasýning.


 


4. sýning – föstudaginn 4. apríl kl. 9:00.


Flytjendur: 1. – 7. bekkur.


Áhorfendur: Nemendur í 3. og 4. bekk og foreldrar/gestir þeirra.


 


5. sýning – föstudaginn 4. apríl kl. 20:00.


Flytjendur: 7.–10. bekkur,


Áhorfendur: Nemendur í 8.–10. bekk og foreldrar/gestir þeirra


Ball (fyrir nem. 8.-10. bk.) er að lokinni sýningu til miðnættis.


 


6. sýning mánudaginn 7. apríl kl kl. 10:00


            Flytjendur: 1.-4.bekkur


            Áhorfendur: Tveir elstu árgangar leikskólanna og unglingastigið


Athugið:



  • Þar sem húsrými er takmarkað eru allir beðnir um að virða óskir um það hverjir mæta á hvaða sýningar.  Mikilvægt er að fólk mæti tímanlega svo hægt sé að hefja sýningu á tilsettum tíma.

  • Aðgangseyrir á árshátíðarsýningu er 1000 kr.  Nemendur (nema á fimmtudagskvöld) og starfsfólk GÍ svo og þeir sem eru 67 ára eða eldri greiða ekki aðgangseyri.  Fólk borgar aðeins inn á eina sýningu, þeir sem sækja fleiri sýningar (þ.e. eiga fleiri en eitt barn í skólanum) sýna fyrri aðgöngumiða við innganginn.  Hagnaður af sýningum rennur í ferðasjóð 7. bk. vegna skólabúða.

  • Aðgangseyrir á diskótekið er 500 kr.

  • Ekki  er tekið við kortum.

  • Mötuneytið er  lokað árshátíðardagana.

  • Það er ekki skóli á unglingastigi á föstudag.


 


Skólastjóri