Árshátíð - enskupróf o.fl.
21.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Lífið gengur sinn vanagang hjá 9. bekk, það er góð vinnulota í gangi núna fram að páskaleyfi. Það styttist í árshátíðarundirbúninginn sem alltaf setur svip sinn á síðustu vikurnar fyrir árshátíð. Þemað í ár er "Lífið er leikur" og verður gaman að sjá hvað kemur út úr því.
Í ensku er 9. bekkur að horfa á myndina um Rómeó og Júlíu, og lesa leikritið. Ætlunin var að hafa próf úr 4. kafla á mánudaginn en vegna þess hve margir nemendur árgangsins eru að fara í keppnisferð um helgina, var ákveðið að fresta prófinu og skilum fram á þriðjudag.








