Árshátíð
22.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Árshátíð 2013
Þá er árshátíðarsýningin okkar að baki og stóð 4. HA sig mjög vel á sýningunni. Í morgun hófst skóladagurinn á því að allir klæddu sig í búningana og fóru í förðun. Síðan fengum við okkur smá nestispásu og fórum að því loknu inn í sal á hofa á sýningu 1. – 7. bekkjar. Við horfðum fyrst á atriði 1.,2. og 3. bekkjar og síðan var komið að okkar atriði. Leikritið okkar var söngleikur sem hét „Lífið er margföldun“ og fjallaði það um hvað gerðist þegar 3 stelpur í bekknum gistu saman eftir erfiðan dag í margföldunarheimanámi. Stelpurnar svifu inn í drauma heima og dreymdu auðvitað margföldunardrauma. Fyrst hittu þær Línu Langsokk og félaga í skólanum þar sem Helga kennari var að kenna þeim margföldun, því næst var Glókollur og félagar heimsóttir og að lokum dreymdu þær Harry Potter og félaga nota margföldunargaldur og vinna Voldemort. Atriðið okkar endaði á því að bekkurinn sameinaðist og söng og dansaði við lagið „Ég á líf“ eða réttara sagt hét lagið í okkar flutningi ´“Ég kann nú, ég kann nú, loksins margföldunina.“ Eftir velheppnaða sýningu horfðum við á krakkana í 5.,6., og 7. bekk sýna sín atriði. Þessi árshátíðarsýning var mjög skemmtilega og að henni lokinni fórum við úr búningunum og tókum frímínútur. Því næst var slegið upp bekkjarskemmtun, með pizzu, nammi og fjöri. Bíóhorn var fyrir þá sem vildu horfa á teiknimyndir, aðrir spiluðu, spjölluðu og skemmtu sér saman. Í lok dags fóru allir heim saddir og sælir. GLEÐILEGA PÁSKA J








